Lambrusco

Eitt af helstu meistaraverkum Ceci-víngerðarinnar á Ítalíu, sem unnið hefur Lambrusco-vín við bakka árinnar Pó í nærri heila öld.

Þéttur og ríkur litur ásamt hárri og hrífandi froðu. Í þessari flösku er allt sem við má búast í sígildasta víninu frá Ceci.

Djúpur og rúbínrauður litur. Fjólublá froða fylgir kröftugri freyðingu.

Ávextir, kirsuber og villt ber.

ALDUR VÍNVIÐAR
Um 15 ár

RÆKTUN
Spalliera

UPPSKERA
Berin handtínd og þau lögð í loftgóðar öskjur

EFTIR UPPSKERU
Á stöðugu hitastigi í stálkerjum

BEST BORIÐ FRAM VIÐ
8-10°C